Um Landnámssetur
Í Landnámssetri bjóðum við uppá margs konar afþreyingu og skemmtun auk þess sem á staðnum er góður veitingastaður.
Landnámssýningin - sýning um Landnám Íslands, 30 mín hljóðleiðsögn á tíu tungumálum og barnarás.
Egilssögusýningin - sýning um Egils sögu, 30 mín hljóðleiðsögn á tíu tungumálum og barnarás.
Egilsslóð - Leiðsögn á merka sögustaði Egilssögu. Lengd ferðar eftir samkomulagi.
Ratleikur, skemmtileg útivera, létt ganga, þrautir og græskulaust gaman.
Fyrir eða eftir leiksýningar er tilvalið að fá sér girnilegan kvöldverð í veitingahúsi Landnámsseturs. Sjá leikhústilboð.
Hlaðhönd - Gjafavöruverslun
Fundaraðstaða er bæði á Sögulofti og í veitingahúsinu.
Veisluaðstaða er í skála og í veitingahúsi. Í veitingahúsinu eru tveir salir, Arinstofa og Hvíti salur sem rúma samtals allt að 100 manns.
Í hádeginu er á boðstólum hollustusúpa, nýbakað brauð og góð, holl og næringarík salöt, tilvalið fyrir vinnandi fólk eða þá sem eiga leið um Borgarnes. Spyrjið um afsláttarkortið sem veitir 10% afslátt og 10. hverja máltíð fría.













